Um er að ræða 280 klst. þriggja anna nám sem gefur þér sjálfsöryggi til að starfa sem andlegur einkaþjálfari. Þú ferð í allsherjar sjálfsrækt og lærir síðan að hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. Það er einnig farið djúpt í viðskiptahliðina hvernig þú getur skapað þér atvinnutækifæri sem andlegur einkaþjálfari að námi loknu. Það er mikið aðhald í náminu og þú færð einn einkatímatíma einu sinni í mánuði (nema á í jóla- og sumarfríum) og aðgang að kennara allan námstímann.

"Ég hreinlega elska þetta nám og ég elska hvað ég er að læra og skilja mikið um sjálfa mig og fólk bara almennt, það er eitthvað svo mikið að opnast fyrir mér gagnvart lífinu almennt" ❤️



Ég er búin með fyrstu önnina mína í að verða andlegur einkaþjálfari en fyrir rúmu ári síðan kláraði ég árs vinnu í andlegri einkaþjálfun hjá Hrafnhildi. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að fá að fara í gegnum þetta ferli aftur en í fyrra skiptið kom ég inn með ákveðið verkefni sem ég þurfti að vinna í og vinnan sem ég vann hefur svo sannarlega bætt lífið. Núna fer ég í gegnum þetta ferli á annan hátt þar sem ég er ekki að einblína bara á eitthvað eitt verkefni heldur bara að auka hamingjuna og vonandi get ég í framhaldinu hjálpað öðrum að líða betur. Hrafnhildur er einstök. Hún hjálpar manni að horfa á lífið út frá öðrum hliðum og hvernig maður sjálfur getur bætt líðan sína og aukið sína hamingju. Andleg einkaþjálfun er eitthvað sem allir ættu að skoða því andlega heilsan okkar er ekki síður mikilvæg en líkamleg heilsa. Maður þarf ekki að vera að ganga í gegnum erfiðleika til þess að að fara í gegnum andlega einkaþjálfun heldur bara til þess að auka lífsgæði og hamingju sína.“Arna

“Nám í andlegri einkaþjálfun hjá Hrafnhildi hefur gefið mér kraft og verkfæri til þess að finna sjálfa mig á ný. Áður en ég hafði samband við Hrafnhildi var ég komin svo langt frá mínu sjálfi að ég þekkti mig ekki lengur og fann lítinn tilgang í lífinu annan en að hugsa um aðra. Í dag set ég mig í forgang. Að rækta andlegu hliðina er besta gjöfin sem ég hef gefið sjálfri mér.”

Rósa Líf


“Ég er mjög ánægð með Hrafnhildi sem kennara/leiðbeinenda, það er hægt að treysta henni fyrir öllu, hún er fylgin sér og tekur vel utan um nemandann hvort sem er í hóp eða einkatímum. Hrafnhildur gefur sér góðan tíma og svarar öllu fljótt og vel. Mér líður eins og að ég sé í einkanámi með besta kennarann hvað varðar andlegu hliðina og manni finnst maður vera alltaf nr. 1.“

Svava


“Þetta nám er einfaldlega það besta sem ég hef nokkurn tíman gefið sjálfri mér, ég hafði svosum engar væntingar því ég vissi eiginlega ekki hvað ég væri að fara útí, ég bara vissi að ég ætti að hlusta á innsæið og ská mig og ég á eftir að þakka sjálfri mér fyrir það það sem eftir er af mínu lífi. Ég er betri ég!”

Arnbjörg


“Þegar ég skráði mig í andlega einkaþjálfun þá var ég ótrúlega týnd með sjálfa mig, ég var með lítið sjálfstraust, var þunglynd og gerði allt fyrir alla og setti mig í síðasta sætið. Þegar ég byrjaði í andlegri einkaþjálfun þá fór ég að vinna að byggja mig upp. Hrafnhildur hjálpar mér að taka eitt lítið skref í einu þannig ég veð ekki áfram. Nú í dag er ég mikið lífsglaðari, jákvæðari og ánægðri með sjálfa mig.  Þetta er vegferð sem ég hefði ekki vilja sleppa og hef gert ótrúlega mikið fyrir mitt líf.”

Helga Katrín


“Andleg einkaþjálfun er það sem hefur skilað mér góðri sýn á tilfinninga rússíbana sem ég hef verið í sl 30 ár. Hún sýnir að maður getur leyft röddinni sinni að hljóma fyrir sjálfa sig, að trúa og treysta á sjálfa sig og hjálpar manni að komast í gegnum erfiðleikana í lífinu og hvað þeir kenndu manni og gerðu mann að þeim sem maður er í dag.

Ég er ofboðslega þakklát fyrir að ég er nánast kominn útúr dimmu skelinni sem lét mann vantreysta öllum og sérstaklega sjálfum sér, fyrir að hafa tilfinningar og kunna ekkert að fara með þær, yfir í það að vera kominn með skjöld fyrir sér og segja hvað manni finnst og vill. Að ég sé farinn að elska sjálfa mig, horfa á mig í spegli og hrósað sjálfri mér, sagst elska mig og hafa trú og traust á sjálfa mig, brosið mitt sést meira, sé orðið raunverulegra og andlitið mitt ber ekki þessa grímu lengur eins og það var alltaf. Ég stend betur í lappirnar og með bakið beint því bakpokinn er ekki eins þungur ennþá og léttist með hverjum mánuðinum.

Þetta er það besta sem hefur komið fyrir mig, og margt hef ég prufað og aldrei fundið mig jafn vel eins og hjá Hrafnhildi.”

Sigríður


“Námið í andlegri einkaþjálfun hefur gefið mér aukinn innri styrk, jákvæðari hugsun og betri líðan á svo margan hátt. Hrafnhildur er einstaklega góður leiðbeinandi og hjálpar manni á svo miklu jafningja grundvelli og það einstaklega gott að leita til hennar og tala við hana.

Margrét Pálmadóttir